Back to All Events

Sunnudags Súkkulaði Sæla í Nesvík 🌼 Sauna Ritual, Cacao Ceremony, Sound Healing & Dinner

*english text below

Sunnudags súkkulaði sæla í Nesvík, 4. Maí 🌼☕️

Velkomin í töfrandi ferðalag inná við í heim hjartans❤️

Sánan verður heit fyrir þá sem að vilja frá 14:00 - 15:45 🔥

Svo færð þú ilmandi og hlýjan seremoníu, kakó bolla beint frá frumskógum Gvatemala til þess að lenda í þér og finna þinn ásetning.

Síðan verður þú leidd/ur inn í líkamann þinn með öndun, hugleiðslu og þaðan færðu síðan að leggjast niður, en þar leiðir Júlía þig í töfrandi heima heilandi tóna sem að vonandi gefur þér skýrleika, slökun, upplifun og umbreytingu.

Gefðu þér rými til þess að endurnærast og koma heim inn í fallega hjartað þitt og þinn innri áttavita.

Í okkar nútíma heimi getum við svo auðveldlega gleymt kjarnanum okkar því það er mikið af utan aðkomandi áreiti sem að truflar okkur og getur þar að leiðandi leitt okkur frá okkar innri kjarna.

Þetta rými er fyrir þig til þess að endurstilla þig, taugakerfið og kjarnann þinn.

Hjartað er stórmerkilegt fyrirbæri sem að varla er hægt að útskýra með orðum en þar, svo sannarlega gerast töfrarnir.

Það eru margar plöntur sem að koma af jörðunni sem að eru sífellt að hjálpa mannkyninu að muna hver við erum í raun og veru. Plönturnar eru með vitun og þær eru svo sannarlega hér til þess að aðstoða okkur í gegnum þennann skrýtna heim sem að hefur orðið til með árum, tækni og aðskilnaðar frá náttúrunni.

Vertu hjartanlega velkomin sunudaginn 4. Maí ✨

Ég hlakka mikið til þess að taka á móti þér í hofi náttúrunnnar í Nesvík🧡

Vert er að hafa í huga áður en komið er:

Gott er að vera með lítið í maganum af mat áður en þú tekur þátt, jafnvel bara einhvað létt eins og ávextir djús eða smoothie, síðan geturu nært þig vel eftir á.

Taktu endilega með þér vatnsflösku og teppi til þess að koma þér vel fyrir í ferðalaginu.

Mæting er klukkan 16:00 - 19:30 í athöfnina.

Sánan verður heit frá 14:00 - 15:45, (taktu það fram í staðfestingar póstinum að þú viljir fara í sánuna)

Matur verður fyrir þá sem að vilja næra sig eftir athöfnina, vegan súpa & súrdeigsbrauð.

Verð - sliding scale frá: 6.500 - 13.000 kr (allt innifalið)

Til þess að taka þátt, þá máttu skrá þig hér að neðan.

Hakka til þess að sjá þig🧡

Previous
Previous
April 13

Full Moon: Sunday Cacao Ceremony & Sauna ritual in the Temple of Nesvík