Back to All Events

KONUHOF ❤️ ÁRSTÍÐAHOF FYRIR KONUR

KONUHOF

🌹🌹🌹

ÁRSTÍÐAHOF FYRIR KONUR

Ferðalagið hefst fimmtudaginn 24. september

Árslöng ferð í gegnum Haust, Vetur, Vor og Sumar á Íslandi

Þú ert boðin inn í heilagt rými

þar sem konur koma saman til að heiðra hringrás lífsins,

bæði í náttúrunni og innra með sér.

Þetta er árslangt ferðalag þar sem við hittumst einu sinni í mánuði

og göngum saman í gegnum árstíðir Íslands og náttúrunnar:

Haust. Vetur. Vor. Sumar.

Við fylgjum flæði og anda landsins,

hlustum á visku líkamans

og leyfum náttúrunni að minna okkur á það

sem við höfum ef til vill gleymt.

Að við erum líka náttúran.

Að við þurfum ekki alltaf að vera að blómstra.

Það er tími til að vaxa.

Tími til að skína.

Tími til að uppskera.

Tími til að sleppa.

Og tími til að hvíla í myrkrinu.

Hver samvera er sjálfstæð athöfn

og um leið hluti af stærri hringrás.

Við vinnum með visku hverrar árstíðar

og hvernig hún speglast í líkama okkar, lífi og innri heimi.

Samverurnar fara fram á Íslandi

og fléttast saman í gegnum athafnir, helgisiði, náttúrutengingu,

ceremonial kakó, svitahof, dans, söng, jóga, hreyfingu, kyrrð, nærveru og systralag.

HAUST 🍂

UPPSKERA • ÞAKKLÆTI • SLEPPING

Fimmtudaginn 24. september hefst ferðalagið okkar.

Við byrjum í haustinu.

Á þeim stað í hringrásinni

þar sem náttúran kennir okkur listina að sleppa.

Trén halda ekki í laufin sín.

Landið dregur orkuna aftur inn á við.

Ljósið mýkist og myrkrið færist nær.

Haustið býður okkur að staldra við

og líta yfir það sem hefur vaxið.

Hvað hefur borið ávöxt?

Hvað viljum við taka með okkur áfram?

Og hverju er kominn tími til að skila aftur til jarðar?

Í haustsamverunum munum við:

• heiðra uppskeru lífs okkar og það sem hefur vaxið og þroskast

• vinna með þakklæti og meðvitaða sleppingu

• tengjast líkamanum og landinu í gegnum athafnir og náttúru

• drekka ceremonial kakó og sitja saman í hring

• skapa rými fyrir tjáningu, hreyfingu, söng, bæn og kyrrð

• undirbúa okkur mjúklega fyrir ferðina inn í myrkari mánuði ársins

Haustið minnir okkur á að slepping er ekki endir.

Hún er heilög leið til að skapa rými fyrir það sem vill fæðast næst.

VETUR 🕯️

INNRI KYRRÐ • HVÍLD • UMBREYTING

Þegar myrkrið dýpkar

snúum við okkur inn á við.

Veturinn kennir okkur að staldra við,

að hlusta

og vera með því sem er.

Þetta er árstíð myrkurs, hvíldar og umbreytingar,

þar sem fræ framtíðarinnar liggja hljóðlega í dvala.

Vetrarsamverurnar fara fram inni í hlýju hofinu,

með aðgangi að saunu utandyra.

Við vinnum með eldinn, gufuna, röddina og kyrrðina

til að styðja líkamann í losun, hvíld og djúpri nærveru.

Í vetrarsamverunum munum við:

• drekka ceremonial kakó í helgri samveru

• vinna með saunu og hita sem hreinsun og jarðtengingu

• sitja saman í hring í kyrrð, hlustun, tjáningu og bæn

• vinna með söng, hljóð og einfaldar athafnir

• gefa rými fyrir hvíld, úrvinnslu og innri hlustun

Veturinn biður okkur ekki um að verða meira.

Hann býður okkur að vera.

VOR 🌱

VAKNING • ENDURFÆÐING • NÝTT UPPHAF

Þegar ljósið snýr aftur

byrjar eitthvað innra með okkur líka að vakna.

Vorið er árstíð nýs lífs,

nýrrar stefnu

og mjúkrar hreyfingar fram á við.

Við færum okkur meira út í náttúruna

og leyfum landinu sjálfu að leiða ferlið.

Í vorsamverunum munum við:

• vinna með ásetning, framtíðarsýn og nýja stefnu

• tengjast frumkrafti lífsins í náttúrunni

• sitja saman í kakóathöfn undir berum himni

• baða okkur í náttúrunni og vinna með einfaldar athafnir sem kalla hið nýja fram

• styðja líkamann í opnun, hreyfingu og jafnvægi

• gefa nýjum draumum rými til að skjóta rótum

Vorið kennir okkur að treysta því sem er að vakna.

Að byrja hægt, með sterkar rætur og opið hjarta.

SUMAR ☀️

LÍF • LJÓS • TJÁNING • TENGING

Sumarið býður okkur inn í fyllingu lífsins.

Landið stendur í blóma.

Dagarnir eru langir.

Lífið streymir í allar áttir.

Athafnirnar fara að mestu fram utandyra

og í töfrandi tjaldi sem verður tímabundið hof okkar í náttúrunni.

Hér vinnum við með gleði, tjáningu, líkamsvitund, sköpun og tengingu.

Í sumarsamverunum munum við:

• fagna lífinu og líkamanum

• dýpka tengsl okkar við okkur sjálfar, náttúruna og aðrar konur

• vinna með dans, gleði, sköpun og frjálsa tjáningu

• heiðra kraft ljóssins og okkar einstöku töfra

• leyfa okkur að taka pláss, sjást og njóta

Sumarið minnir okkur á að lífið vill ekki aðeins að við lifum af.

Það vill að við lifnum við.

OG SVO SNÝR HRINGURINN AFTUR 🍂

Eftir fyllingu sumarsins

byrjar landið aftur að kalla orkuna heim.

Við snúum aftur inn í haustið,

en við erum ekki sömu konurnar og hófu ferðalagið.

Við höfum gengið heilan hring.

Við höfum sleppt.

Hvílst.

Vaknað.

Blómstrað.

Og nú fáum við að líta til baka,

heiðra ferðalagið

og uppskera það sem árið hefur kennt okkur.

Því náttúran ferðast aldrei í beinni línu.

Hún ferðast í hringjum.

Og það gerum við líka.

FYRIR HVERJAR ER ÞETTA?

Þetta rými er fyrir konur

sem finna köllun til að lifa í dýpri tengingu við náttúruna, líkama sinn og hringrásir lífsins.

Fyrir konur sem vilja hægja á.

Hlusta.

Muna.

Tengjast öðrum konum á einlægan og nærandi hátt.

Og finna aftur þann hluta innra með sér

sem veit hvernig á að lifa í takt við landið.

Þetta er ekki námskeið.

Ekki eitthvað sem þarf að klára eða ná tökum á.

Þetta er heilagt rými til að vera, muna, finna og tengjast.

Ef eitthvað innra með þér dregst að þessu,

þá er það næg ástæða.

Við hittumst 1x í mánuði og hver stund kostar 15.000 kr

Hver stund verður mjög fjölbreytt og lifandi.

Þetta er lokaður hópur sem að mun ferðast saman í heilt ár.

Hringurinn er að myndast.

Landið heldur rýminu.

Haustið kallar okkur heim. 🍂

Previous
Previous
September 13

SUNDAY CEREMONY: Sauna Ritual, Cacao Ceremony, Sound Bath & Dinner