Back to All Events

Náttúru-dags-ævintýri: Hot springs, Sauna & Cacao í Hveragerði

❤️

Velkomin í Náttúru-dags-ævintýri í Hveragerði.

Við ætlum að byrja ferðalagið inn í leyniskóginum þar sem að við drekkum hjarta opnandi, seremoníal kakó saman og tengjum okkur við okkar innri náttúru.

Þaðan færum við okkur síðan í heita fossinn og heitu laugarnar sem að eru í nágrenni við skóginn. Sánan verður einnig sjóðandi og hægt er að hoppa á milli í köldu ánna og heitan straum.

Eftir heitu laugarnar og ævintýrin lendum við saman í dinner heima hjá Hinrik sem að býr rétt hjá.

Þetta verður algjör dekur-hleðsla og þú ert svo innilega velkomin/n.

Skráning fer fram hér að neðan:

Verð sliding scale: 8.000 - 11.000 kr

Þú færð síðan allar upplýsingar sendar til þín eftir að þú ert búin/n að skrá þig.

Við hlökkum til að leika saman út í náttúrunni.

Ást og gleði,

Júlía & Hinrik


Previous
Previous
July 1

Saunagus, Kakó Seremonía & Dinner í Nesvík 1. Júlí