Back to All Events

HEIÐRUM LANDIÐ, Kakó Athöfn & Saunagus á Þingvöllum, föstudaginn 13. Júní

Velkomin í töfrandi Athöfn á Þingvöllum 13. Júní.

Landið er aldrei meira lifandi heldur en núna á þessum tímum í kringum sumar sólstöður, forfeður & formæður okkar ganga meðal oss í þessum heimi og Þingvellir víbra visku landsins.

Núna er tíminn til þess að koma saman til þess að heiðra galdra og töfra þessa lands ásamt okkur sjálf.

Sitjum saman út í náttúrunni á Þingvöllum, með eldinum, hjarta opnandi kakó og hlustum á það sem að vill koma.

Við munum leiða þig inn í hugleiðslu og tónferðalag á meðan við sitjum við eldinn.

Kakó athöfnin byrjar klukkan 15:00

Sánan verður heit frá klukkan 18:00, hægt er að baða sig í Þingvallarvatni þess á milli.

Það er spáð hita, logni og sól!! :)

Þessi dagur verður algjört ævintýri og hleðsla fyrir andann, líkamann og sál.

Verð fyrir Athöfnina:

5.000 kr

Athöfn + Sána:

8.000 kr

Við hlökkum svo mikið til þess að vera með þér á þessum töfra degi, föstudagurinn þrettándi er alls ekki óhappa tala, heldur virkar það öfugt.

Við sendum þér svo staðsetningu þegar þú skráir þig hér fyrir neðan, endilega taktu fram hvort þú viljir taka þátt í bæði eða bara öðru, þar sem að við erum með takmarkað pláss í sánuna.

Previous
Previous
June 8

SUNDAY CHURCH: Sauna & Ocean ritual, Cacao Ceremony & Dinner 🪷

Next
Next
June 17

SUMARFÖGNUÐUR í Nesvík 🌻 DANSVEISLA & Kakó seremonía