Hjartanlega velkomin í FULL MOON DANSVEISLU & Kakó Seremoníu í Nesvík, næstkomandi fimmtudagskvöld - með Júlíu og Maríu!
Á þessu fulla tungli ætlum við að koma saman, fagna sumrinu & njóta lífsins í fallegu nàttúruperlunni við Nesvík.
SÁNAN verður í boði klukkan 16:00 fyrir þá sem að vilja tengja sig aðeins við náttúruna áður en að viðburðurinn hefst! :)
Kl. 18:30 hefjum við veisluna á töfrandi KAKÓ SERIMÓNÍU með Júlíu:
Með hugleiðslu & innra ferðalagi skapast rýmið til að tengjast inn á við, koma heim í hjartað, inn að kjarnanum í átt að dýpri tengingu við þig, hjartað, innsæið, líkamann & andann.
Iðkun sem hjálpar okkur að komast nær okkur sjálfum, fólkinu, náttúrunni og lífinu.
Þaðan tekur DANSINN við:
María leiðir inn í tengingu við líkamann, andann & tónlistina. Hér fléttast saman frjálst dans flæði / Ecstatic dans og leiðsla fyrir enn dýpri & magnaðri upplifun á dans ferðalaginu.
Litrík & lifandi tónlist & taktur fær að leiða förina og veita innblásturinn inn í dansinn.
Við endum kvöldið í kyrrðinni með innilegu tónabaði & djúpslökun.
Hvenær:
Fimmtudagskvöldið, 10. Júlí
18:30-22:00
Verð: 6.000 kr
( Ef þú ætlar að koma í SÁNUNA, þá kostar það: 3.500 kr aukalega. )